Ó­trú­legur sam­hugur: Milljónir hafa safnast – „Mikill er harmur unga mannsins“

Ó­hætt er að segja að hugur Ís­lendinga hafi verið hjá að­stand­endum ungu pólsku fjöl­skyldunnar sem lenti í skelfi­legu um­ferðar­slysi í Skötu­firði á laugar­dag. Tvennt lést í slysinu; Kamila Majewska og sonur hennar, Mikola­j Majewski sem var á öðru aldurs­ári.

Eins og Hring­braut greindi frá í gær­morgun var blásið til söfnunar fyrir að­stand­endur fjöl­skyldunnar sem bú­settir eru í Pól­landi. Kom fram að and­virði söfnunarinnar myndi renna til að koma nánustu fjöl­skyldu parsins til landsins til að veita To­mek Majewski, eigin­manni Kamilu og föður Mikola­j, stuðning á þessum erfiðu tímum.

Á pólskri vef­síðu sem var sett upp vegna söfnunarinnar var stefnt var að því að safna 60 þúsund slots, sem eru um tvær milljónir króna, en skemmst er að segja frá því að söfnuninni var hætt þegar upp­hæðin var komin yfir 100 þúsund slots, rúmar þrjár milljónir króna.

Á Face­book deildu einnig fjöl­margir lands­kunnir Íslendingar upp­lýsingum um söfnun til styrktar föðurnum. Þannig deildu til dæmis margir færslu Berg­þórs Páls­sonar, tón­listar­manns og skóla­stjóra, á Face­book í gær­kvöldi. Í færslunni sagði hann:

„Margt smátt gerir eitt stórt. Stofnaður hefur verið stuðnings­reikningur fyrir unga manninn sem missti eigin­konu sína og barn á öðru ári í hörmu­legu slysi í Skötu­firði.

Reiknings­númer 0123-15-021551 og kenni­tala 031289-4089.“

Margir svöruðu kalli Berg­þórs og lögðu söfnuninni lið, til dæmis Ingi­björg Sól­rún Gísla­dóttir, fyrr­verandi ráð­herra, sem sagði: „Búin. Mikill er harmur unga mannsins sem eftir lifir. Sendi honum heilandi strauma.“ Meðal annarra sem lögðu söfnuninni lið má nefna tónlistarmennina Friðrik Ómar Hjörleifsson og Jógvan Hansen.