„Ó­trú­legt ef þessi at­burðar­rás endar með því að blautur draumur Bjarna rætist“

Óskar Steinn Jónínu­son Ómars­son, fyrr­verandi ritari Sam­fylkingarinnar, segir ó­trú­legt ef sala ríkisins á Ís­lands­banka og gagn­rýni á hana verði til þess að draumur Bjarna Bene­dikts­sonar um að leggja niður banka­sýsluna verði að veru­leika.

Eins og fram hefur komið hyggst ríkis­stjórnin leggja niður banka­sýsluna og þess í stað inn­leiða nýtt fyrir­komu­lag til að halda utan um eignar­hluta ríkisins í fjár­mála­fyrir­tækjum.

Óskar rifjar upp tvær fréttir af á­formum Bjarna frá 2011 og 2015. Í þeirri fyrri segir Bjarni að banka­sýslan sé ó­þörf með öllu en árið 2015 lagði hann sem fjár­mála­ráð­herra fram frum­varp um að Banka­sýslan verði lögð niður.

Var hann harð­lega gagn­rýndur þá af Össuri Skarp­héðins­syni sem sagði frum­varp Bjarna ó­trú­legt.

„Banka­sýslan er lögð niður og í staðinn leggur Bjarni til að hann sjálfur sem fjár­mála­ráð­herra fái vald til að taka al­einn – „að eigin frum­kvæði“ -á­kvörðun um sölu 30% hlutar í Lands­bankanum, allra hluta ríkisins í Aríon og Ís­lands­banka og í spari­sjóðunum. Gleymum þá ekki að við af­nám gjald­eyris­hafta er stefnt að því að allir hlutir Aríon og Ís­lands­banka, sem nú eru í eigu kröfu­hafanna, komist í eigu ríkisins,“ skrifaði Össur þá.