Ótrúlegt atvik á Laugavegi: Týndi 300 þúsund krónum

„Vinur minn afrekaði það að missa 300.000 kall úr rassvasanum á Laugaveginum í gær.“

Þetta sagði Bjartmar Leósson, oft kallaður hjólahvíslarinn, í Facebook-hópnum Tapað/fundið á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Í hópnum biðlaði Bjartmar til þess eða þeirra sem mögulega hafa upplýsingar um málið að hafa samband.

Fréttablaðið greinir frá málinu.

„Kannski langsótt en má reyna, kannski fann þetta einhver og vill vera heiðarlegur,“ sagði Bjartmar.

Í samtali við Fréttablaðið í morgun sagði Bjartmar að enginn hefði gefið sig fram enn sem komið er. Hann benti þó að svona mál hefðu stundum ratað í fréttir, einhver góður borgari fundið peninga á förnum vegi og komið þeim í hendur lögreglu. Kveðst hann vona að sá sem fann peningana geri slíkt hið sama.

„Það væri aldeilis frábær saga að segja frá ef einhver hefði skilað 300 þúsund krónum. Það væri jákvæðasta frétt dagsins,“ segir hann.