Ótrúlegar myndir sýna stöðuna eftir óveðrið á Austurlandi í gær

Ótrúleg sjón blasti við Benedikti Jónssyni, íbúa í Breiðdalsvík, í morgun en bærinn var allur ísi lagður eftir óveðrið sem gekk yfir á Austurlandi í gær.

Lægja fór á svæðinu í dag og var dagurinn mjög rólegur en ljóst er að mikill vindur og frost hafi verið á svæðinu.

Benedikt náði myndum af stöðunni og birti á Facebook fyrr í dag. „Eftir ofsaveður er þetta nú bara nokkuð flott,“ skrifar Benedikt við færsluna sem hefur nú verið deilt oftar en 600 sinnum þar sem fólk dáist af sjónarspilinu.

Myndirnar má finna hér fyrir neðan.

Eftir ofsaveður er þetta nú bara nokkuð flott.

Posted by Benedikt Jonsson on Sunnudagur, 10. janúar 2021