Hjónin Geirþrúð Elídóttir og Ingimar Víglundsson hafa ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu eftir að hafa farið fýluferð með Norrænu á dögunum. Hjónin hugðust fara til Færeyja en þangað fara þau á hverju ári til dvalar í húsi sem þau eiga.
Fréttablaðið hefur fjallað um mál hjónanna, bæði í gær og í dag.
Kórónuveirufaraldurinn setti strik í reikninginn hjá hjónunum og fengu þau ekki að fara í land í Færeyjum. Þau neyddust því til að sigla áfram til Danmerkur og beint aftur heim til Íslands.
Aðeins Færeyingar, Danir og Grænlendingar mega koma til Færeyja um þessar mundir en ekki Íslendingar eða ríkisborgarar annarra landa. Ríkisborgarar þessara þriggja landa þurfa þó að fara í tveggja vikna sóttkví en öðrum er óheimilt með öllu að fara í land. Það átti líka við um hjónin þó þau eigi hús í Færeyjum þar sem þau hefðu getað dvalið í sóttkví.
Geirþrúð og Ingimar vissu þetta ekki þegar þau lögðu af stað í síðustu viku. Í samtali við Fréttablaðið sagði Geirþrúð að hún sé sjúklingur og það sé ekki beint spennandi að þvælast svona. Hún er öryrki og sjálfur er Ingimar kominn á eftirlaun.
Framkvæmdastjóri Norrænu ferðaskrifstofunnar segir að enginn hafi gert sér grein fyrir því að hjónin fengju ekki að fara í land. Hjónin komu til Seyðisfjarðar í gær áður en þau héldu til Akureyrar þar sem tekur við tveggja vikna sóttkví.
Í Fréttablaðinu kemur svo fram að til að bæta gráu ofan á svart hafi bifreið þeirra skemmst um borð í Norrænu. Segir framkvæmdastjóri Norrænu ferðaskrifstofunnar að stýrimaðurinn hafi lent í klaufalegu óhappi með bílinn en hjónunum verið sagt að láta gera við bílinn og senda reikning.
„Þau er bara fegin að vera komin heim,“ segir Sædís Inga Ingimarsdóttir, dóttir hjónanna, í samtali við Fréttablaðið.