Ótrúlegar framfarir hjá Guðmundi Felix: „Skilinn einn eftir heima“

Guðmundur Felix Grétarsson, sem handleggir voru græddir á úti í Frakklandi fyrir réttum tveimur árum, segist vera að safna taugum. Og þess sjáist merki í ótrúlegum framförum í hreyfigetu og sjálfstæði sem séu langt framar vonum hans.

Þetta kemur fram í afar persónulegu viðtali við Guðmund Felix á Fréttavaktinni á Hringbraut í kvöld þar sem hann lyftir meðal annars vatnsglasi og dreypir á því til að leggja áherslu á hvers hann er megnugur, svo fáum misserum eftir afar flókna aðgerð sem allsendis óvíst var hvaða lífsgæðum myndi skila honum.

Í viðtalinu rifjar Guðmundur Felix upp fyrstu helgina á heimili sínu í borginni Lyon í Frakklandi undir lok síðasta árs er hann „var skilinn einn eftir heima“ og það í fyrsta skipti í aldarfjórðung án þess að þurfa á aðstoð nákominna að halda.

Ekki missa af Fréttavaktinni á Hringbraut klukkan 18:30 í kvöld.