Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður Vísis sem sumir myndu kalla stjörnublaðamann, skellti sér í bólusetningu á fimmtudag. Fengu lesendur Vísis meðal annars að lesa býsna skemmtilega frásögn Jakobs af bólusetningunni.
Það sem vakti ekki síður athygli var mynd af Jakobi í sjálfri bólusetningunni sem fylgdi fréttinni. Á myndinni má sjá blaðamanninn sitja á stól í Laugardalshöllinni, klæddur póló-bol, þar sem hann bíður eftir því að fá bóluefnið. Er óhætt að segja að vöðvastæltur vinstri upphandleggur Jakobs hafi fangað augu margra. Jakob birti myndina á Facebook-síðu sinni og sagði:
„Ég hef verið að fara um Facebook og miðlað af reynslu minni; veitt ráð varðandi fatnað og framkomu í bólusetningunni. Ekki hika við að spyrja ef það er eitthvað,“ segir Jakob.
Ekki voru allar athugasemdirnar um ráð og framkomu í bólusetningunni heldur snerust margar þeirra um stæltan upphandlegginn.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir til dæmis: „Bíddu, er þetta einhver vaxtaræktarkeppni???“ Aðrar athugasemdir voru í svipuðum tóni:
„Ég vil miklu frekar fá ráð hvernig ég fæ svona byssur? Drullusama þó ég rífi einhvern bol í bólusetningu.“
„Þessir handleggir eru nú ekkert til að skammast sín fyrir. Er þetta golfið? eða stangaveiðin? Er verið að massa sig upp fyrir sumarið?“
Lögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson sagði einfaldlega: „ÞESSI BICEP ER EKKI KEYPTUR Í BÓNUS!“
Bubbi Morthens hrósaði Jakobi í hástert: „Tek eftir hvernig þú flexsar vinstri, vel gert!“
Viktoría Hermannsdóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV, spyr svo mikilvægrar spurningar: „Bíddu fyrirgefðu, ertu með leyfi fyrir þessum byssum???“
Ég hef verið að fara um Facebook og miðlað af reynslu minni; veitt ráð varðandi fatnað og framkomu í bólusetningunni. Ekki hika við að spyrja ef það er eitthvað.
Posted by Jakob Bjarnar Gretarsson on Þriðjudagur, 4. maí 2021