Aron Leví Beck, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, deildi ansi mögnuðu myndbandi á Twitter-síðu sinni í gær sem vakið hefur verðskuldaða athygli.
Á myndbandinu sést Aron sýna sannkölluð „pabbaviðbrögð“ þegar hann kemur í veg fyrir að sonur hans verði fyrir aparólu.
„Mamma mín hefur oft sagt að ég sé dramatískur,“ segir Aron í Twitter-færslunni en undir henni er myndbandið af hetjudáðum borgarfulltrúans.
Eins og fyrr segir hefur myndbandið vakið athygli á Twitter. Ef marka má teljara á myndbandinu hefur verið horft á það tæplega 10 þúsund sinnum.
„Þetta var kallað Zenga varsla þegar ég var ungur, sjónvarpsvarsla í dag. Þetta á að fara á alla miðla,“ segir Ágúst Már Garðarsson, oft kallaður Gústi Chef, í athugasemd. Aron Leví virðist vera með fyrirsögnina á hreinu fyrir netmiðlana og segir:
„Borgarfulltrúi bjargar barni úr lífsháska, SJÁÐU MYNDBANDIД
Margir hafa hrósað Aroni fyrir viðbrögðin og segir til að mynda einn: „Vó hundrað pabbastig á þig!“
Mamma mín hefur oft sagt að ég sé dramatískur pic.twitter.com/K72zUsp3zr
— Aron Leví Beck (@aron_beck) August 18, 2021