Ótrúleg veðurspá fyrir morgundaginn – Hitinn gæti farið í 15 stig

Það er engum ofsögum sagt að veðrið víða hér á landi það sem af er vetri hefur verið óvenjulegt. Á morgun gera spár ráð fyrir óvenjulegum hlýindum og gæti hitinn fyrir norðan farið í 15 stig.

„Á morgun miðvikudag er spáð talsvert áköfum, en skammvinnum hlýindum þegar fleygur af lofti með mjög suðlægan uppruna fer norðaustur yfir land,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í nýjum pistli á vef sínum, Bliku.

Einar segir að kjarni þessa hlýja lofts verði yfir Norður- og Austurlandi síðdegis á morgun. Þetta sé vissulega nokkuð sérstakt en þó ekki einsdæmi þar sem álíka hlýtt loft – og jafnvel hlýrra – hefur farið hér um svipað leyti árs nokkrum sinnum.

Einar segir að hitinn verði hæstur í hnjúkaþey fyrir norðan. „Á Akureyri kæmi mér ekki á óvart að hitinn komist í 12 til 13 stig og allt að 15°C þar sem best lætur norðanlands. Ætla að leyfa mér að spá að það gæti orðið á Sauðnesvita við Siglufjörð.“

Í pistli sínum bendir Einar á að ekki þurfi að leita langt aftur í tímann til að finna jafnvel hærri hitatölur fyrir norðan.

„Við samanburð sést að þessi vetrarhlýindi eru þó ekki eins mikil og afgerandi og hér urðu í byrjun desember 2019.  Á Akureyri komst hiti þá í 15,5°C (2. des)  og sló fyrra hitamet frá 1964.  Litlar líkur á að hitinn komist í þær hæðir nú. Þarna í byrjun desember fór hiti í 19,7°C á Kvískerjum sem er hæsti desemberhiti á landinu. Nóvembermetið er hærra, 22,7°C  á Dalatanga, 10. nóv 1999 í eftirminnilegri hitastroku, en  þá með SV-átt.“