Ó­trú­leg upp­á­koma í mið­borginni: 25 kærðir fyrir brot á sótt­varnar­lögum

Lög­reglan á höfuð­borgar­svæðinu kærði um það bil 25 ein­stak­linga vegna brots á sótt­varnar­lögum í mið­borg Reykja­víkur í gær­kvöldi.

Rétt fyrir klukkan 21 í gær­kvöldi var lög­reglu til­kynnt um dans­leik í hús­næði við hlið veitinga­staðar þar sem gestir fóru síðan inn á veitinga­staðinn og báru á­fengi og aðrar veitingar á milli.

Í skeyti sem lög­regla sendi frá sér í morgun kemur fram að um 25 hafi verið kærðir. Þá var veitinga­staðurinn, á­samt á­byrgðar­manni, einnig kærður fyrir brot á á­fengis­lögum. Lögum sam­kvæmt er bannað að bera á­fengi út af veitinga­stað. Sam­komunni var slitið og fólki vísað út.

Frekari upp­lýsingar um málið koma ekki fram í skeyti lög­reglu.

Vart þarf að taka fram að 20 manna sam­komu­bann er enn í gildi en auk þess þarf að tryggja 2 metra ná­lægðar­mörk milli ein­stak­linga sem eru ekki í nánum tengslum. Þá gildir grímu­skylda þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra ná­lægðar­mörkin. Svo virðist vera sem þessar reglur hafi verið þver­brotnar í gær­kvöldi.