Ásgeir Örn Hallgrímsson, fyrrverandi leikmaður íslenska landsliðsins, var með áhugaverð ummæli í HM stofunni í gær. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari fékk yfir sig holskeflu af gagnrýni fyrir að spila allt of fáum leikmönnum gegn Ungverjalandi en þreyta leikmanna átti stóran þátt í að liðið tapaði á laugardaginn.
Þegar tapið var til umræðu í gær, sagði Ásgeir að atvinnumenn í handbolta ættu vel að geta spilað 2x60 mínútur. Arnar Daði þáttastjórnandi hlaðvarpsins Handkastið og sérfræðingur í Seinni Bylgjunni bendir á ummæli Ásgeirs og segir þau í raun ótrúleg.
„Áhugaverð ummæli hjá Ásgeiri Erni í HM-stofunni sem segist gera þær kröfur að leikmenn landsliðsins geti spilað 2x 60 mínútur á þremur dögum. Dagur og Logi gerðu vel og komu með staðreyndir sem sanna það að þessi ummæli eru ótrúleg. Allir léttir. Einar,“ skrifar Arnar.
Myndbrot af ummælunum má sjá hér að neðan.
Áhugaverð ummæli hjá Ásgeiri Erni í HM-stofunni sem segist gera þær kröfur að leikmenn landsliðsins geti spilað 2x 60mínútur á þremur dögum. Dagur og Logi gerðu vel og komu með staðreyndir sem sanna það að þessi ummæli eru ótrúleg. Allir léttir. Einar. pic.twitter.com/VfjrrR7Xlm
— Arnar Daði (@arnardadi) January 16, 2023