Ótrúleg tilviljun hjá Alexöndru: Lenti þrisvar sinnum í þessu í dag

Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, greinir frá röð óheppilegra atvika í Facebook-færslu í dag þar sem hún segir frá því að hún hafi þrisvar á einum og sama deginum ruðst inn á vitlausan fund.

Facebook-færslu Alexöndru má sjá hér fyrir neðan en þar kemur fram að í fyrstu hafi Alexandra mætt á fund sem var búið að afboða án hennar vitundar.

Í hádeginu hafi hún mætt á fund og verið of snemma á ferðinni og því gengið inn á annan fund.

Að lokum hafi hún mætt á þriðja fundinn og komist að því að hún væri á röngum fundi. Það hafi verið réttur fundarstaður en að fyrri fundarhöld stæðu enn yfir.