Ótrúleg heppni Íslendings: Vann 32 milljónir í gærkvöldi og 130 milljónir fyrir fjórum árum

Íslendingur sem vann 32 milljónir króna í EuroJackpot í gærkvöldi vann 130 milljónir króna í sama lottói fyrir fjórum árum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Maðurinn sem um ræðir er á sextugsaldri en hann keypti sér miða í Lottóappinu og landaði 3. vinningi í útdrætti gærkvöldsins. Fékk hann í sinn hlut rúmar 32 milljónir króna.

„Starfsfólki Íslenskrar getspár fannst andlit vinningshafans eitthvað kunnuglegt þegar hann heimsótti höfuðstöðvar Getspár í morgun, enda hafði hann komið til þeirra áður, nánar tiltekið fyrir rúmum fjórum árum þegar hann vann rúmlega 130 milljónir króna í EuroJackpot; hæsta 2. vinning sem komið hefur til landsins hingað til.“

Í tilkynningunni kemur fram að það hafi reyndar komið fyrir nokkrum sinnum að heppnir spilarar vinni stóra vinninga oftar en einu sinni.

„Talan þrír lék skemmtilegt hlutverk í EuroJackpot að þessu sinni því í ljós kom að það voru þrír vinningshafar sem fengu 3. vinning í gær og var það í þriðja skiptið sem 3. vinningur kemur á þriðjudegi til Íslands eftir að byrjað var að draga tvisvar í viku.“