Valgeir Guðjónsson, sem er einna best þekktur fyrir að tilheyra hinni goðsagnakenndu sveit Stuðmönnum, segir á býsna skemmtilegan hátt frá tilurð lagsins Held ég gangi heim í nýjasta þætti Tónatals sem hóf göngu sína á ný á RÚV í gær. Fjallað var um þetta á vef RÚV í gær.
Lagið er eitt það þekktasta eftir Valgeir en það varð til eftir örlagaríkt kvöld árið 1978 þegar hann var handtekinn fyrir utan Laugardalshöll ásamt vini sínum, Páli Baldvinssyni.
Þeir félagar höfðu farið á tónleika með Stranglers í Höllinni ásamt eiginkonum sínum en að tónleikum loknum ætlaði allt um koll að keyra þegar stór hópur unglinga braut rúður í höllinni og komst inn.
„Lögreglan kemur þarna alveg dýróð gersamlega og einn var æstastur, það var varðstjórinn,“ sagði Valgeir meðal annars en varðstjórinn rauk að Valgeiri. Svo fór að þeir félagar voru handteknir þrátt fyrir mótmæli og fullyrðingar þess efnis að þeir væru blásaklausir.
„Ég var í frakka, ansi fínum, og hann tók svo hart á mér að frakkinn rifnaði næstum fram á olnboga. Okkur var hent í lögreglubíl og þar sitjum við við hliðina á manni sem var nýbúið að taka fyrir nauðgun,“ sagði hann meðal annars. Þeir félagar máttu dúsa niðri á lögreglustöð í fangaklefa í reinn og hálfan tíma en eftir þessa reynslu samdi Valgeir einmitt lagið Held ég gangi heim.