Þórarinn Ævarsson, oft kenndur við IKEA og Spaðann, var kominn ofan í djúpa holu vegna þunglyndis, notkunar á ópíóðalyfjum og stöðugs höfuðverkjar sem stóð yfir mánuðum saman. Með hjálp hugvíkkandi efna hefur Þórarinn náð sér á strik á nýjan leik.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Þórarinn sem birtist á vef Vísis í morgun.
Óhætt er að segja að saga Þórarins sé merkileg en hann vakti fyrst athygli þegar hann gegndi starfi framkvæmdastjóra IKEA með eftirtektarverðum árangri. Hann stofnaði svo pítsukeðjuna Spaðann sem fór á hausinn á síðasta ári.
Í viðtalinu fer Þórarinn yfir síðustu misseri í lífi sínu og má segja að erfitt ár sé nú að baki.
Þórarinn fékk heilablóðfall fyrir 20 árum og hefur síðan þá glímt við höfuðverki af og til. Verkirnir fóru að ágerast á síðustu árum og um áramótin 2020/21 fékk hann kast sem stóð yfir þar til um verslunarmannahelgi 2021. Eðli málsins samkvæmt notaði hann verkjalyf til að létta líf sitt en þegar þau voru hætt að virka fékk hann ávísað verkjalyfinu oxycontin.
Eins og dæmin sanna fór notkunin á lyfinu úr böndunum og um svipað leyti þyngdist geðið. Í stað þriggja taflna tók hann fimm og viðurkennir að hann hafi áttað sig á að honum væri vandi á höndum. „Ég vildi fara, mér leið ömurlega illa,“ segir hann á einum tímapunkti í viðtalinu.
Til að gera langa sögu stutta kynntist Þórarinn hugvíkkandi efnum og lýsir hann þeirri reynslu sinni í viðtalinu sem má lesa í heild sinni hér.