Hjónin Guðrún Alda Harðardóttir og Sigurður Salvarsson, sem búsett eru í Þingholtunum í Reykjavík, segja ótrúlega reynslusögu sína af Covid-19 í fréttaþættinum 21 á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld.
Í vel ríflega mánuð, frá miðjum mars fram yfir páskana í apríl, bjuggu þau aðskilin á heimili sínu, hún í heimavist á efri hæðinni sakir undirliggjandi lungnasjúkdóms, en hann á þeirri neðri, tómri AirBnB-íbúð þerra hjóna, sakir þess að hafa greinst með Covid-19 eftir utanferð með þremur félögum sínum til Englands þar sem hann hefur líklega smitast af veirunni. Einn annar ferðafélaginn greindist líka með Covid-19, tveir hinna ekki.
Guðrún Alda og Sigurður draga ekkert undan í lýsingum sínum á dramatískum og stundum líka broslegum senum sem biðu þeirra á vikunum sem fóru í hönd. Hún fékk vistir heim að dyrum, skipti þeim á milli hjónanna, skildi hans skammt eftir framan við dyrnar á neðri hæðinni, sem hann sótti svo eftir að hún var örugglega farin. Og þegar hann bað konu sína að sækja alla tómu pokana sem höfðu safnast upp nokkru síðar sagðist hún ekki vilja koma nálægt þeim.
Sjálf kveðst Guðrún Alda hafa misst skammtímaminnið vegna álags og ótta á þessum tíma, hún hafi ekkert munað stundinni lengur. Verst hafi þó verið að heyra ekki af karli sínum á nóttunni, hvorki hósta né stunu, hvernig honum liði, hvort hann andaði yfirleitt. Og Sigurður segist sjálfur, þegar sóttinn var hvað verst, hafa byrjað að sættast við dauðann, hann mundi sjálfsagt ekki hafa þetta af, en versta tilfinningin á þeim tíma var sú að hann myndi deyja einn, án konu sinnar og ástvina.
Hann lýsir þeim kostulega degi þegar hann var kallaður inn á Covid-göngudeildina í Fossvogi einn daginn þegar heilbrigðisstarfsfólk þar hafði hvað mestar áhyggjur af honum, en þar blasti við honum sena úr Star Trek eða einhverri annarri geimvísindamynd. Hann hafi þó fundið fyrir hlýjunni undir öllum hlífðarbúningunum og allt heilbrigðisstarfsfólk hafi staðið sig framúskarandi vel.
Guðrún Alda segir að daginn sem Sigurður fékk að koma aftur inn á efri hæðana, til síns heima, eftir að staðfest var að sóttin var afstaðin, hafi hann birst henni eins og fangi; fölur og magur – og henni hafi brugðið. En svo fóru þau bæði að gráta og grétu lengi – yfir lífinu.
Fréttaþátturinn byrjar klukkan 21:00 í kvöld.