Ótrúleg atburðarás: Borgin týndi ketti Þuríðar – „Nú þurfum við bara að bíða og vona“

Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leik- og söngkona, segir farir sínar ekki sléttar eftir að starfsmenn Reykjavíkurborgar fönguðu og fjarlægðu köttinn hennar, Nóru, eftir kvartanir frá nágranna hennar síðastliðinn laugardag. Ekki vildi betur til en svo að Nóra slapp úr haldi borgarinnar og er nú týnd í Laugardalnum.

Fréttablaðið fjallaði um málið í gærkvöldi og ræddi við Þuríði.

Þó nokkur tími leið frá því að starfsmenn borgarinnar komu og fjarlægðu Nóru þar til Þuríður fékk að vita hvað hafði orðið af honum. Þegar það tókst kom í ljós að Nóra hafði sloppið úr haldi borgarinnar og er nú einhvers staðar í Laugardalnum, fjarri heimili sínu.

„Ég talaði við mann hjá Reykjavíkurborg og þau voru auðvitað mjög leið yfir þessu. Hann tók fram að þetta yrði kannski til þess að þau myndu breyta verkferlum sínum og jafnvel til þess að þau hættu að klófesta ketti í gildrur sem ég vona að verði raunin,“ segir Þuríður við Fréttablaðið.

Hún bætir við að starfsmenn borgarinnar ætli að hafa augun opin í Laugardalnum og sjá hvort Nóra komi ekki í leitirnar.

„Það sem er óþægilegt er að nú þurfum við bara að bíða og vona að hún skili sér af sjálfsdáðum eða að fólk í nærliggjandi umhverfi hafi augun opin,“ segir Þuríður Blær.

Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.