Ótal hættulegar aðstæður og listinn ekki tæmandi

Verulega hættulegt er að stunda vetrarfjallamennsku miðað við langan lista hættulegra aðstæðna sem iðkenndur geta lent í og tíundað er í auglýsingu í dag. Á annan tug hættulegra aðstæðna eru nefndar í heilsíðu auglýsingu Ferðafélags Íslands og er listinn ekki tæmandi, eins og þar segir. Vetrarfjallamennska er hættuleg þeim óreyndari en eftirfarandi eru nefndar „hættulegar aðstæður“ í umrræddri auglýsingu:

  • Hætta á að hrasa – renna í hálku
  • Hætta á að renna í fjalllendi í harðfæri – hálku
  • Hætta á að hrapa fram af fjallsbrúnum / klettum
  • Hætta á að villast – verða úti
  • Hætta á að lenda í óveðri – verða úti
  • Hætta á að verða blautur – kaldur – krókna
  • Hætta á að falla í gegnum ís á vatni
  • Hætta á að lenda í snjóflóði / aurskriðum
  • Hætta á að verða sambandslaus
  • Hætta á að lenda í vandræðum vegna þess að maður er vanbúinn / illa búinn
  • Hætta á að vanmeta aðstæður / ofmeta sjálfan sig

Mörg tilefni eru til þess að tíunda hætturnar og má einnig sjá leiðbeiningar og öryggisatriði Ferðafélagsins fyrir undirbúning - vel fyrir 20 atriði sem huga þarf að til að koma heill á húfi frá vetrarútivistinni á fjöllum.

Mynd/Facebook Ferðafélag Íslands