Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og þingmaður, vill að Íslendingar gangi til samningaviðræðna við Rússa um bóluefni þeirra.
Össur vakti talsverða athygli skömmu fyrir jól þegar hann gagnrýndi upplýsingaóreiðuna í tengslum við komu bóluefnis til landsins. Hvatti hann íslensk stjórnvöld til að hugsa út fyrir boxið og hætta að einblína á vesturlensk bóluefni gegn COVID-19 og leituðu fangar víðar en hjá Pfizer og AstraZeneca, til dæmis Rússlands eða Kína.
„Kerfisstóðinu fannst það eðlilega af og frá - mörgum. Ég fékk ábúðarfull símtöl. Það þóttu ekki nægilega góðar rannsóknir fyrir hendi á þeim. Á þeim tíma var ég mjög skeptískur á AstraZeneca og ætla reyndar aldrei að láta bólusetja mig með því ef ég á undankomu auðið. Ég skildi ekki skrítnar niðurstöður rannsókna með það bóluefni í upphafi og sýnist enn af umfjöllun að það sé í slappari kantinum,“ segir Össur í færslu á Facebook.
Össur segir að hann tæki bóluefninu frá Pfizer fagnandi. „Það virðist súperstöff. - Nú liggja fyrir niðurstöður um rússneska Spútnik bóluefnið. Það virðist líka súperstöff. Þær eru nægilega traustar til að fá birtingu í frægasta læknatímariti veraldar, The Lancet. - Fyrir mig jafngildir það því að leggja höndina í sárið einsog Tómas í síðu meistarans forðum - og trúa,“ segir Össur sem endar pistil sinn á þessum orðum:
„En líffræði hefur sosum aldrei verið mín sterkasta hlið. - Hvað segja sóttvarnarbrekkurnar?“
Bóluefni Rússa, Sputnik V, hefur þótt gefa afar góða raun en í vísindagreininni sem Össur vitnar til og birtist í læknaritinu Lancet kom fram að það veitti tæplega 92% vörn.