Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, sótti heim elliheimili fyrir skömmu til skrafs og ráðagerða við gamlan kunningja úr pólitíkinni og deilir skemmtilegri sögu af heimsókninni á Facebook-síðu sinni.
Þar segir hann að yfirlæknir elliheimilisins hafi lagt sig alla fram við að fylgja sóttvarnareglum í ystu æsar en veitt undantekningu fyrir heimsókn Össurar og nokkurra annara. Þeir félagar gæddu sér á kjötsúpu og lögðust svo í sjónvarpsgláp þar sem hasarmynd á streymisveitunni Netflix varð fyrir valinu.
„Gestum var dreift með “social distance” um stofuna á hægindastóla, sófa og legubekki. Hinn góði doktor var af bæ en þegar hún kom heim og sá aldna pólitíska reynslubolta einsog hráviði um stofuna undir teppum varð henni að orði: “Þetta er einsog krúttlegt elliheimili!”