Össur segir KSÍ vera að skíta á sig – þetta segist Vanda vera að gera í Katar

Össur Skarp­héðins­son, fyrrum ráð­herra, lætur Knatt­spyrnu­sam­band Ís­lands heyra það í nýjum pistli á Face­book.

„Fifa er alveg að skíta á sig, og KSÍ líka. Hvernig kemst Fifa – lík­­lega spilltustu al­­þjóða­­sam­tök sem séð hafa dagsins ljós - upp með að styðja katarísk yfir­­völd í skipu­lögðum mann­réttinda­brotum? Hin­­segin fólk er hund­elt í Katar í skjóli laga,“ segir Össur.

„Á sama tíma kemst Fifa upp með að setja sér­­stakar reglur um að leik­­menn sem vilja bera regn­­boga­­merki í Katar til stuðnings sam­kyn­hneigðum fái gult spjald. Fifa tekur þannig þátt í mann­réttinda­brotum katarískra stjórn­valda. Hvernig gerðist það? Vissu aðildar­­þjóðirnar ekkert af því? Á meðan KSÍ og nor­ræn knatt­­spyrnu­­sam­tök mót­­mæla þessu ekki þannig að heimurinn taki eftir eru þau með ó­­beinum hætti að taka þátt í þessum mann­réttinda­brotum. For­­maður KSÍ er stödd í Katar og segist vera þar á fundum með Fifa. Það er sið­­ferði­­leg skylda hennar að beita sér fyrir að Ís­land, eitt eða með öðrum, taki þetta mál upp og a.m.k. láti í ljós and­­stöðu sína – og láti heiminn vita,“ skrifar Össur að lokum.