Össur segir Ingu hafa klúðrað dauðafæri í gærkvöldi

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra til margra ára, birti skemmtilega greiningu á eldhúsdagsumræðunum sem fram fóru á Alþingi í gærkvöldi.

Össur hefur tekið þátt í nokkuð mörgum slíkum umræðum og veit því ágætlega hvað hann syngur í þeim efnum. Þrátt fyrir það segist Össur hafa í gærkvöldi lagt á sig í fyrsta skipti í mörg ár að hlusta á ræður í fyrri umferð eldhússdags á Alþingi. Segir hann að það hafi verið léttbærara að sitja undir þeim á sínum tíma.

„Guðlaugur Þór flutti talsvert forsætisráðherralega ræðu þó hann væri augljóslega ekki búinn að ná sér af hinni ógleymanlegu “þeir-töpuðu” ræðu í kosningapartíi sínu. Það var mögnuð ræða sem líklega verður munuð lengur í flokkssögunni en ræðan sem hann flutti í kvöld. Hinn geðfelldi framsóknarmaður, Willum Þór, sýndi óvænta hlið með því að nota þýðingu Geirlaugs Magnússonar á pólsku ljóði í þéttri ræðu sinni. Það er líka einhver póesía í því að gamall fótboltaþjálfari sé orðinn besti formaður fjárlaganefndar um langt árabil,“ segir Össur í greiningu sinni.

Hann segir að „tilfinningasprengjan“ Inga Sæland hafi klúðrað dauðafæri til að rífa Flokk fólksins upp úr ládeyðu 3 prósenta fylgis, en flokkurinn virðist á barmi þess að þurrkast út ef marka má skoðanakannanir. Össur segir að hún hafi líklega flutt sína lökustu ræðu og segir: „Jafnvel óratorar eiga ekki að fara án blaða í eldhúsdag ef þeir hafa ekki þrauthugsað hvað þeir ætla að segja.“

Össur kemur svo að bestu ræðunum og segir að þær hafi tvær aðrar konur flutt.

„Píratinn Þórhildur Sunna var með neglingu á Samherja og snéri beitta svipu úr orðum Seðlabankastjórans sem á dögunum hjólaði í Samherja fyrir ógeðslega árás á starfsmenn bankans,“ segir hann en hin konan sem hann nefnir er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Össur segir að ræða hennar hafi að vísu ekki byrjað vel.

„Þorgerði Katrínu tókst næstum að slökkva á mér í byrjun ræðu sinnar með tuði um slaka frammistöðu ríkisstjórnarinnar. Það er ekkert sérlega klók taktík þegar farsælli siglingu gegnum kófið er að ljúka. Svo reif hún sig upp í alvöruham um sægreifana og auðlindagjöld og dró arsnúg í þeim parsus sem var hápunktur tíðindalítils kvölds. Þorgerður Katrín á að halda sig á þessari torfu en ekki eyða kosningabaráttu í tuð gagnvart ríkisstjórn sem hefur staðið sig vel við erfiðar aðstæður. Ef Viðreisn nær flugi þá flýgur hún á málefnalegri sérstöðu. Hún er ærin. Í stuði er Þorgerður líklega besti ræðumaður þingsins í dag,“ segir Össur sem endar greiningu sína á sínum gamla flokki, Samfylkingunni.

„Í ræðu formanns míns gamla flokks var ekkert að frétta af ESB-aðild sem þó var annað helsta áherslumál flokksins í ræðu Loga á flokksstjórnarfundi fyrir nokkrum dögum. Ég lifi það af – og hann vonandi líka.“