Össur ó­sáttur eftir upplýsingafundinn: „Virkar satt að segja sem dæma­laust klúður“

„Upp­lýsingar yfir­valda, þrí­eykis og annarra, um bólu­efni er varla hægt að kenna við annað en ó­reiðu,“ segir Össur Skarp­héðins­son, fyrr­verandi þing­maður og ráð­herra til margra ára, um stöðu mála vegna bólu­setningar við CO­VID-19.

Ó­ljós svör komu fram á upp­lýsinga­fundi al­manna­varna í morgun um dreifingu bólu­efnis til lands­manna og sagði Ásta Valdimars­dóttir, ráðu­neytis­stjóri í heil­brigðis­ráðu­neytinu, að ekki væri samið um af­hendingar­tíma í þeim samningum sem gerðir hafa verið.

Össur bendir á í langri færslu á Facebook að fyrir stuttu hafi yfir­völd barið bumbur yfir því að vera búin að semja við Pfizer um bólu­efni fyrir alla þjóðina. Talað hafi verið um að bólu­setning yrði kláruð á fyrsta og öðrum árs­fjórðungi 2021 og ekkert benti til annars en að nóg bólu­efni yrði til reiðu innan skamms.

„Á síðustu dögum hefur hins vegar komið í ljós að mjög mikið mun skorta upp á að bólu­efnið berist í tíma. Nú er talað um að bólu­setning verði ekki lokið fyrr en undir lok árs. Full­trúar kerfisins fóru í flæmingi undan spurningum Björns Inga um bólu­efnin á upp­lýsinga­fundinum í dag. Skýr svör komu ekki fram. Þar kom hins vegar fram sú ó­trú­lega stað­reynd að þó ís­lensk stjórn­völd hefðu gert samninga við ein­staka lyfjarisa þá hefðu þau EKKI samið um af­hendingar­tíma. Þetta er í reynd ó­trú­legt og virkar satt að segja sem dæma­laust klúður. Hverjir gengu svona laust frá samningum og hver ber á­byrgð á því? Vissu ráð­herrar ekki af þessu þegar þeir sköpuðu væntingar hjá þjóðinni - m.a. ferða­þjónustunni - um að búið yrði að bólu­setja þjóðina á fyrri part árs?“

Björn Ingi Hrafns­son, rit­stjóri Viljans og höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru, skrifar einnig um málið eftir upp­lýsinga­fundinn í dag. Björn Ingi hefur setið býsna marga upp­lýsinga­fundi en í pistli sínum segir hann að í dag hafi honum í fyrsta skipti hann ekki fá full­nægjandi svör við spurningum sínum.

Össur segir að þessi staða gæti orðið Ís­lendingum dýr í lífs­gæðum og kostnaði. Segir hann að ef bólu­setningum verði ekki lokið fyrr en seinni part næsta árs – þvert á væntingar sem stjórn­völd sköpuðu – þýði það meðal annars að eitt ferða­þjónustusumar til við­bótar mun glatast.

„Það kostar þjóðar­búið tugi milljarða og lík­lega fjölda fyrir­tækja sem hafa getað dregið fram lífið. Séð af Vestur­götunni virkar þetta af­leit frammi­staða hjá heil­brigðis­yfir­völdum,“ segir Össur sem bætir við að nú sé spurningin þessi:

„Hvernig ætla stjórn­völd að bregðast við þessari nýju stöðu - sem þau sjálf virtust ekki lesa úr eigin gerningum? Ætla þau bara að sitja á sínum rassi og sjá hvort þetta reddist ekki gegnum Pfizer og AstraZene­ca? Þau fyrir­tæki virðast þó í reynd hafa beitt upp gagn­vart þörfum Ís­lendinga. Hið síðara er þar að auki með með bólu­efni sem virðist miklu síðra bólu­efnum sem verið er að fram­leiða til dæmis í Kína og Rúss­landi.“

Össur segir að í þessari stöðu þurfi stjórn­völd að slást til að bjarga ís­lenskum hags­munum.

„Mjálmið á upp­lýsinga­fundinum um að Ís­lendingar væru svo smáir að betra væri að vera í stóru sam­floti virkjar hjá­kát­lega and­spænis þeirri stað­reynd, að gegnum tengsl við æðstu ráða­menn Kína komu flug­vélafarmar þaðan í sumar með grímur og annað sem Ís­lendinga skorti fyrir heil­brigðis­þjónustuna. Gildir eitt­hvað annað um bólu­efni?

Í Sam­einuðu fursta­dæmunum og að ég best veit einu öðru araba­ríki er verið að sprauta fólk með kín­versku bólu­efni sem hefur 86% virkni. Í Abu Dhabi hefur það staðið yfir í heilan mánuð. Annað bólu­efni kín­verskt virðist jafn gott. Um tólf önnur bólu­efni kín­versk eru að komast ná­lægt fram­leiðslu­stigi.“

Össur spyr hvers vegna stjórn­völd fara ekki á sömu stúfa og í sumar og hafi beint sam­band við kín­versk stjórn­völd og fái þaðan bólu­efni, að minnsta kosti þar til Pfizer fer að standa við samninga.

„Ríka fólkið í Evrópu sækist eftir bólu­efnum þaðan af því buzz­ið hjá milljóna­mæringunum er að þar sé besta bólu­efnið að finna. Hvað veit ég. Er það pólitískur rétt­trúnaður a la Trump sem veldur að ekki má leita Kín­verja? Hvað með rúss­nesku bólu­efnin? Hvaða hags­munir koma fyrst? Á meðan blæðir ferða­þjónustu og fleiri al­mennir borgarar munu eiga um sárt að binda en ella.“