Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, er til í að veðja vinstri höndinni á að Guðmundur Árni Stefánsson verði næsti bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Össur og Guðmundur Árni þekkjast vel en eins og kunnugt er bar sá síðarnefndi sigur úr bítum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði á dögunum fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Verður Guðmundur oddviti og bæjarstjóraefni flokksins í sveitarfélagi sem hann þekkir vel. Guðmundur Árni var bæjarstjóri Hafnarfjarðar frá 1986 til 1993.
„Guðmundur Árni er stórkostlegur maður, hjartahlýr – og eins og ég, bæði breyskur og eðalkrati dauðans. Hann stendur með lítilmagnanum og veit að sterkt atvinnulíf er hin hliðin á sterku velferðarkerfi. Hann er klassískur jafnaðarmaður sem er á móti einkavæðingu heilbrigðiskerfisins og hefur hjarta, sem er á hárréttum stað. Reynsla skiptir máli – og Guðmundur Árni er maður með ríka lífsreynslu,“ segir hann á Facebook-síðu sinni.
„Ég þekkti störf hans sem fulltrúa Íslands á erlendri grundu, og hann var first-class. Hann reif upp Hafnarfjörð á sínum tíma og gerði að stórveldi hér á suðvesturhorninu. Fyrir utan það er hann líka eins og ég – alltaf á besta aldri. Ég myndi kjósa hann hvar sem er, og hvenær sem er. Ég er líka til í að veðja vinstri höndinni upp á að hann verður næsti bæjarstjóri í Hafnarfirði. Sælir eru Gaflarar...“