Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra, þingmaður og fyrsti formaður Samfylkingarinnar, lýsir yfir stuðningi við þingkonuna Kristrúnu Frostadóttur um að hún verði næsti formaður Samfylkingarinnar.
„Hvenær ætlar Samfylkingin að kalla þessa efnilegustu konu íslenskra stjórnmála til forystu? Hnífskarpur greinandi með pólitíska framtíðarsýn sem hefur svo sárlega skort síðustu árin, þegar flokkurinn hefur hrakist eins og sprek án sýnilegs sjókorts -og uppskorið fylgi í samræmi við það,“ segir Össur á Facebook-síðu sinni.
Hann segir að öfugt við síðustu formenn hafir hún erindi sem nær bergmáli.
„Hvenær ætlar Logi formaður að láta nótt sem nemur og lýsa stuðningi við að Kristrún Frostadóttir verð leiðtogi flokksins sem fyrir 20 árum var helmingi stærri en Sjálfstæðisflokkurinn er í dag? Mín trú er að atgervi og geta Kristrúnar geti aftur lyft Samfylkingunni í oddaaðstöðu í íslenskum stjórnmálum. Spyrjið andstæðingana - eina manneskjan sem þeir vilja ekki sem formann er Kristrún.“