Össur kemur Birni Inga til varnar: Dýpstu og bestu spurningarnar

„Það er eiginlega makalaust að langminnsti fjölmiðillinn, Viljinn, spyr jafnan langdýpstu spurninganna á hinum daglega þjóðfundi þríeykisins um Covid-19,“ segir Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður, ráðherra og ritstjóri, í færslu á Facebook.

Össur vísar þarna í Björn Inga Hrafnsson, ritstjóra Viljans, sem hefur verið fastagestur á daglegum upplýsingafundum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Björn hefur vakið athygli fyrir spurningar sínar; hrós hjá sumum og gagnrýni hjá öðrum eins og gengur og gerist.

Össur skilur þó ekki þá sem sjá ástæðu til að gagnrýna Björn Inga.

„Vel getur verið að Björn Ingi sé ekki elskaður af öllum. En fyrir minn ræfilshatt bera spurningar hans af á daglegum fréttamannafundum um veiruskrattann og gefa þeim sannarlega aukið gildi. Hann les greinilega heima og fylgist með fjölmiðlum heimsins,“ segir Össur sem bætir við að lokum:

„Alla vega verðskuldar hann meira hrós fyrir sitt framlag en vera sproksettur í “Flissað með frægum” hjá Gísla Marteini.“

Færsla Össurar vakti þó nokkur viðbrögð og voru margir sem tóku undir hana. „Algjörlega sammála þér frændi,“ sagði til dæmis Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn.