Þráinn Bertelsson, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, segir ánægjulegt að þrátt fyrir það takmarkanir sem COVID-19 hefur kallað yfir okkur reyni sumir að láta ekkert trufla sig frá hollri útiveru.
„Til dæmis sýnir þetta fjölnota umferðarskilti að enda þótt fuglar séu friðaðir á varptíma þá geta friðsamir skotmenn (og skotkonur) haldið sér í formi árið um kring með því að velja sér önnur skotmörk,“ segir Þráinn sem birtir mynd af sundurskotnu umferðarskilti.
Ekki liggur fyrir hvar myndin er tekin en það breytir engu um það að svona eiga menn ekki að gera.
Þráinn fer í reglulegar gönguferðir með bolabítinn Theobald, en eins og margir muna skrifaði Þráinn býsna skemmtilega bók sem inniheldur örsögur og samtöl þeirra um lífið og tilveruna. Þráinn segir svo í athugasemd undir færslunni:
„Fyrir stuttu síðan gengum við framá hálfvita sem var að þjálfa tvo unglinga í skotfimi við göngustíg á Dalaleið. Hann var afskaplega kurteis og tillitssamur við okkur Theobald og sagði: „Ég skal biðja þá að bíða með að skjóta meðan þið farið hjá.“
Miðað við athugasemdir undir færslunni eru margir sárir að sjá svona vanvirðingu gagnvart hlutum sem segja má að séu almenningseign.
„Svakalega er þetta sorglegt. Einu sinni voru öll skilti utan byggðar svona. Síðan var gert átak og byggð sérstök skotæfingarsvæði og þau eru mjög víða og vel tækjum búin. Skil ekki hversvegna fólk gerir þetta og hélt reyndar að það væri lögbrot að nota skotvopn utan æfingasvæða nema á veiðislóð,“ segir í einni athugasemd.
Í annarri segir til dæmis: „Svona sundurskotin umferðarskilti hef ég bara séð einu sinni áður, og það var í Flórída.“