Óskar Steinn Jónínuson, frambjóðandi Samfylkingarinnar í nýafstöðnum kosningum, hefur varpað fram stórrar spurningar sem enginn virðist vilja svara í tengslum við framhaldsmál Guðmundar- og Geirfinnsmála.
Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í dag telur settur ríkislögmaður að ásetningur Erlu Bolladóttur um rangar sakargiftir á hendur Klúbbmönnum hafi verið einbeittan þrátt fyrir sýknudóm Hæstaréttar í Geirfinnsmáli.
Erla sagði fyrir dómi í gær að aðild fólksins að mannshvarfinu væri ósönnuð, eins og Hæstiréttur hefði fallist á með sýknudóminum. Engu að síður væri það látið standa að þau þrjú hefðu tveimur sólarhringum eftir hvarf Geirfinns rætt um að benda á einhverja aðra. Miðað við flækjustigið í rannsókn málsins væru klókindi þeirra til jafn flókinnar ráðagerðar stórlega ofmetin.
Margsinnis hefur komið fram að játning Erlu á sínum tíma hafi verið gerð undir miklum þrýsting af hálfu yfirvalda, var meðal annars hótað að taka hana frá nýfæddu barni sínu.
Óskar spyr:
„Hvers vegna er ríkið (ríkislögmaður fyrir hönd ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur) að beita sér með þessum hætti gegn endurupptöku máls Erlu Bolladóttur? Af hverju þessi harka gegn konu sem augljóst er að var þolandi lögregluofbeldis og dómsmorðs?,“ spyr hann á Twitter.
„Þarna er ríkislögmaður að spinna upp einhverja sögu um að Erla og félagar hafi með ásetningi og samanteknum ráðum ætlað að klína hvarfi Geirfinns upp á Klúbbmenn, þrátt fyrir að hafa hvergi komið nærri málinu! Hvað gengur stjórnvöldum til með því að halda þessu fram?“
Hann segir að dómurinn gegn Erlu um rangar sakargiftir á hendur Klúbbmönnum sé síðasta hálmstráið sem heldur uppi opinberri útskýringu ríkisins. „Ef málið verður endurupptekið er hætta á að upp komi um raunverulega ástæðu þess að þessi ótrúlega atburðarrás fór öll af stað.“
Blaðamaðurinn Erna Ýr Öldudóttir segir svo:
„Enginn opinber starfsmaður hefur orðið að bera ábyrgð vegna Geirfinnsmálsins ennþá. Þeir eru margir og valdamiklir. Afkomendurnir líka. Peningum skattgreiðenda var bara hent í þolendur til að kaupa frið.“