Óskar Steinn Ómarsson, fyrrverandi ritari Samfylkingarinnar, birti í dag færslur á samfélagsmiðlinum Facebook um söluna á Íslandsbanka sem hafa vöktu mikla athygli en þar tók hann saman einstaklinga sem „græddu“ á nýliðinni sölu ríkisins í Íslandsbanka.
Óskar fór þar eftir frétt Kjarnans frá því í gær sem sagði að á annað hundrað manns höfðu selt hlut sinn í Íslandsbanka eftir söluna, meðal annars Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðarkona í Vestmannaeyjum.
Frétt Kjarnans var byggð á nýjum hluthafalista en það að einstaklingarnir séu ekki lengur á hluthafalista þýðir ekki endilega að þeir hafi selt hlut sinn en eins og Vísir greindi frá því í dag var það rangt að Þorsteinn og Guðbjörg hefðu selt. Hluthafar geta fært hlut sinn í stýringu hjá t.d. banka og þá er bankinn nefndur á listanum en ekki eigandi hlutarins. Þá hverfur nafnið af án þess að hluturinn hafi verið seldur
Óskar er maður með meiru og viðurkenndi mistök sín og eyddi fyrri færslum.
„Búinn að eyða færslum þar sem ég hélt því fram að Þorsteinn Már, Guðbjörg Matthíasdóttir og Pálmi Haraldsson væru búin að selja þá hluti sem þau keyptu á afslætti í lokuðu útboði Íslandsbanka. Þau eru víst ekki öll búin að selja. Staðan þremur vikum eftir útboð er því þessi,“ segir Óskar.
Hann nýtti þó tækifærið til að minna fólk á hversu mikið hlutir þeirra sem keypu með afslætti hefur hækkað.
https://publish.twitter.com/?query=https%3A%2F%2Ftwitter.com%2Foskasteinn%2Fstatus%2F1514231199664795649&widget=TweetBúinn að eyða færslum þar sem ég hélt því fram að Þorsteinn Már, Guðbjörg Matthíasdóttir og Pálmi Haraldsson væru búin að selja þá hluti sem þau keyptu á afslætti í lokuðu útboði Íslandsbanka. Þau eru víst ekki öll búin að selja. Staðan þremur vikum eftir útboð er því þessi:
— óskar steinn (@oskasteinn) April 13, 2022