Óskar birtir lista yfir þá sem græddu á Ís­lands­banka: „Til hamingju öll“

Óskar Steinn Ómars­son, fyrr­verandi ritari Sam­fylkingarinnar, hefur birt færslur á sam­fé­lags­miðlinum Face­book um söluna á Ís­lands­banka sem hafa vakið mikla at­hygli.

Þar tekur hann saman þrjá ein­stak­linga sem græddu á ný­liðinni sölu ríkisins á hlut í Ís­lands­banka sem hefur heldur betur reynst um­deild. Ein­staklingarnir þrír eru þau Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, Guð­björg Matthías­dóttir, út­gerðar­kona í Vest­manna­eyjum og Pálmi Haralds­son, betur þekktur sem Pálmi í Fons. Ís­lendingum vel kunnugir.

Óskar skrifar:

„Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, er búinn að selja hluta­bréfin sem hann keypti í Ís­lands­banka á af­sláttar­kjörum. Miðað við gengi bréfa í bankanum náði hann að græða á bilinu 25,2 og 32,5 milljónir á kaupunum. Það tæki mann­eskju á lág­marks­launum um sjö ár að vinna fyrir þeirri upp­hæð. Til hamingju öll.

Risa­stór sigur fyrir VG: Guð­björg Matthías­dóttir, út­gerðar­kona úr Vest­manna­eyjum, er búin að selja hluta­bréfin sem hún keypti í lokaða Ís­lands­banka­út­boðinu. Hún náði að græða 40 til 51 milljón á við­skiptunum. 12-föld árs­laun lág­launa­fólks. Því­líkur árangur.

Pálmi Haralds­son, eða Pálmi í Fons, er einn þeirra heppnu sem fengu sím­tal. Hann er nú búinn að selja sinn hlut og græða 19-25 milljónir á við­skiptunum. Því­líkt ævin­týri, því­lík snilld hjá ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur hvað getur maður sagt annað en TAKK“