Ó­sáttar með að tveir karlar skipti með sér borgar­stjóra­stólnum: „Feðra­veldið í hnot­skurn“

Dag­ur B. Eggerts­­son, borgar­stjóri og odd­viti Sam­­fylk­ing­ar­inn­ar, og Ein­ar Þor­­steins­­son, odd­viti Fram­­sókn­ar­­flokks­ins, munu skipta með sér borg­ar­­stjóra­­stóln­um á kom­andi kjör­­tíma­bili.

Þetta kom fram á blaða­manna­fundi í dag þar sem nýr meiri­hluti í Reykja­vík var kynntur.

Ekki eru þó allir sáttir með þessa skiptingu og spyr Nicho­le Leigh Mo­sty, fyrr­verandi þing­maður Bjartrar Fram­tíðar, hvers vegna kona taki ekki við borgar­stjóra­stólnum. Af þeim fjórum flokkum sem eru í sam­starfinu eru konur odd­vitar í tveimur þeirra, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir fyrir Pírata og Þór­dís Lóa Þór­halls­dóttir fyrir Við­reisn.

Nicho­le segir þetta verða feðra­veldið í hnot­skurn á twitter.

Eva Dögg Guð­munds­dóttir tekur undir og segir að hún hefði viljað sjá Þór­dísi Lóu sem borgar­stjóra

Hekla Elísa­bet Aðal­steins­dóttir sem starfar fyrir þing­flokk Pírata segir málið „ó­geðs­lega tragi­kómískt“ og taka fjölmargir undir með henni.