Ó­sátt við okur: Fór í klippingu og var rukkuð um 500 krónur fyrir grímuna

Segja má að skiptar skoðanir séu á meðal fólks um það hvort eðli­legt sé að borga 500 krónur fyrir and­lits­grímu þegar þjónusta er keypt á stöðum þar sem þess er krafist að notuð sé gríma.

Kona ein sagði frá því í fjöl­mennum Face­book-hópi hér á landi, þar sem flest sem við kemur kórónu­veirunni er til um­ræðu, að hún hafi verið rukkuð um þessa upp­hæð þegar hún fór í klippingu. Konan kveðst hafa gleymt að taka með sér grímu en verið boðið að kaupa eina á stofunni fyrir 500 krónur.

„Mér finnst að stofurnar eigi að sjá við­skipta­vinum fyrir grímum fyrst við erum að skipta við þær á þessum tímum, þær þurfa þá ekki að loka á meðan. Fyrir utan svo það að klipping sem tók 20 mínútur kostaði 9000 kr.,“ segir konan í færslunni en ó­hætt er að segja að skiptar skoðanir séu um inn­leggið.

Sú at­huga­semd sem hefur fengið hvað flest læk, eða tæp­lega 70 talsins, er á þá leið að það sé á hennar á­byrgð að vera með grímu en ekki hár­greiðslu­stofunnar. Konan sem setti upp­haf­legt inn­legg inn bendir þá á að það sé hreint okur að rukka 500 krónur fyrir grímuna. Bent er á að hægt sé að kaupa þær á allt að tí­falt lægri upp­hæð í stykkja­tali.

Þá segir konan að það myndi flokkast undir góða þjónustu að hár­greiðslu­stofur myndu út­vega við­skipta­vinum grímur og selja þær svo á kostnaðar­verði.

Ó­hætt er að segja að færslan hafi fengið mis­jöfn við­brögð og fær konan nokkur vel valin orð frá fólki í þræðinum. Það sé á hennar á­byrgð að koma með grímu með sér og það sé ekki hægt að ætlast til þess að hár­greiðslu­stofan hlaupi undir bagga með öllum kúnnum.

Konan segir að henni sé alveg sama um allt skít­kast: „Okur er okur,“ segir hún.

Að minnsta kosti tveir starfs­menn á hár­greiðslu­stofum blanda sér í um­ræðuna og segja þeir að grímurnar séu seldar á við­komandi stofum á annars vegar 150 krónur og hins vegar 100 krónur.

Hvað segja les­endur, er of mikið að rukka 500 krónur eða ættu við­skipta­vinir að gjöra svo vel og muna eftir því að koma með grímu með sér?