Ósammála um framtíð Arons: „Mitt gisk er að fyrirliðinn mæti aftur“

Nokkuð hefur verið rætt og ritað um framtíð Arons Einars Gunnarssonar með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta. Rúmir 450 dagar eru liðnir síðan Aron Einar spilaði síðast landsleik.

Eftir að meint nauðgunarmál gegn honum og Eggerti Gunnþór Jónssyni var fellt niður af héraðssaksóknara og ákvörðunin síðan staðfest af ríkissaksóknara á dögunum hafa ýmsir velt því fyrir sér hvort Aron gefi ekki kost á sér í landsliðið að nýju. Hann er 33 ára, á besta aldri og án nokkurs vafa einn af okkar bestu leikmönnum. Næsti leikur Íslands er gegn Albaníu í lok þessa mánaðar og gæti ráðið úrslitum um sigur í Þjóðadeildinni.

Rætt var um framtíð Arons í hlaðvarpsþættinum Þungavigtin og fjallaði 433.is á vef DV um samræður þeirra Ríkharðs Óskars Guðnasonar, Rikka G. og Kristjáns Óla Sigurðssonar. Þeir voru ekki sammála um framtíð kappans.

„Ég held að hann hafi engan áhuga á að vera valinn,“ sagði Ríkharð en Kristján Óli var ekki á sama máli. „Mitt gisk er að fyrirliðinn mæti aftur. Þetta er stolt þjóðarinnar. Hann mætir og rífur þetta í gang.“