Eitt lið Þróttar á N1 fótboltamótinu sem haldið var núna um helgina, neitaði að mæta til síðasta leik liðsins á mótinu. Liðið átti að keppa við FH um fimmta sætið en neitaði að keppa við þá vegna þess að þeim fannst FH vera of miklir tuddar. Liðin höfðu áður mæst í riðlakeppni mótsins.
Knattspyrnudeild Þróttar sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins í fram henni kom að lið FH hefði sýnt framkomu sem ekki á að sjást á vellinum, „framkomu sem einkenndist af agaleysi og vanvirðingu gagnvart mótherjum og starfsmönnum mótsins.“
„Þegar slíkt gerist er það ábyrgðaraðila, s.s. þjálfara, dómara og mótsstjórnar, að grípa inn í. … Ef það er ekki gert, þá er hætta á að hinn fagri leikur snúist upp í andhverfu sína,“ segir í tilkynningunni.
Í samtali við Vísi sagði Þórður Einarsson, þjálfari 5. flokks karla hjá Þrótti, að Þróttur hafi tekið þessa ákvörðun um að senda liðið ekki til leiks gegn FH. „Maður vill ekki kasta neinum börnum undir rútuna en við völdum í raun að spila ekki við lið sem virtist eiga mjög erfitt með að stjórna skapi sínu og að okkar mati var það ekki tekið nógu föstum tökum af mótshöldurum og þjálfurum,“ sagði Þórður við Vísi.
Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH er óánægður með hvernig leyst var úr málinu.
Mikil umræða hefur skapast á samfélagsmiðlum um þátttöku foreldra á mótinu.
Styrmir Sigurðsson lagði hreinlega til að banna ætti foreldra á mótum.
Hvenær ætlum við hreinlega að banna foreldra á þessum mótum og leyfa þjálfurunum og krökkunum að njóta sín? Foreldrar drengja í Þrótt neituðu semsagt að spila leikinn við FH þvi þeim fannst FH vera svo miklir tuddar þegar liðin mættust í riðlinum #lifi https://t.co/iQFJeoYk66
— Styrmir Sigurðsson (@StySig) July 2, 2022
“Við erum ekki að fara að raka af okkur bringuhárin og spila eins og stelpur” - pabbi á N1 mótinu 2022 🤯😢
— Fjola (@fjolagudjons) June 30, 2022
Til móðurinnar sem kallaði “Tussa” á einu stúlkuna sem spilaði í drengja liði hjá KA á N1 mótinu. Ekki fylgja barninu þínu á fleiri mót og leitaðu þér aðstoðar.
— Birkir Örn Pétursson (@birkirp) July 1, 2022