Öryrkjar verða fyrir aðkasti á göngugötum miðborgarinnar

Dæmi eru um að hreyfihamlaðir einstaklingar sem hafa nýtt þann rétt sinn að aka á göngugötum í miðborg Reykjavíkur verði fyrir aðkasti frá gangandi vegfarendum.

Fréttablaðið fjallar um þetta í dag og vísar í bréf sem Öryrkjabandalag Íslands hefur sent Reykjavíkurborg. Þar er þess farið á leit að borgin bæti úr merkingum við göngugötur þannig að skýrt sé að handhafar stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða hafi rétt til að aka umræddar götur.

Bent er á að í sumar hafi hluti Skólavörðustígs, Laugavegar og Vegamótastígs orðið að varanlegum göngugötum. Bannmerki tilgreinir að allur akstur sé bannaður með ákveðnum undanþágum, til dæmis fyrir þá sem þurfa að komast að baklóðum eða fara með vörur í verslanir. Hvergi var þó minnst á undanþáguheimild handhafa stæðiskorta.

Bréfið var tekið fyrir í aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks í vikunni en í því kemur fram að hreyfihamlaðir hafi orðið fyrir aðkasti fyrir að nýta þennan rétt sinn.