Hálfgerð örtröð er nú á Suðurstrandarvegi en mörg hundruð manns freista þess nú að komast á gosstöðvarnar í Geldingadölum. Valgarður Gíslason, ljósmyndari Fréttablaðsins, tók meðfylgjandi myndir nú á þriðja tímanum í dag og á þeim má sjá bílaröð nánast svo langt sem augað eygir.
Almannavarnir sendu frá sér tilkynningu í dag að gosstöðvarnar verði rýmdar klukkan 17 vegna hættu á gasmengun. Eru allir þeir sem hyggjast skoða gossvæðið hvattir til að fara af svæðinu fyrir klukkan 17.
Blaðamaður Fréttablaðsins á svæðinu segir að lögregluþjónar við Suðurstrandaveg séu nánast orðlausir yfir þeim mikla fjölda sem hefur lagt leið sína að gosstöðvunum í dag. Hefur lögregla hvatt ökumenn til að leggja bílum sínum hægra megin við vegkantinn til að tryggja rými fyrir björgunarsveitarbíla ef um neyðarakstur er að ræða. Ekki hafa þó allir farið eftir þessum fyrirmælum eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.