Orri segir að Helgi Björns þurfi að vera á tánum – Ingó slær í gegn

„Helgi Björns má alveg vera á tánum gagn­vart þessu teymi,“ segir Orri Páll Ormars­son, blaða­maður á Morgun­blaðinu, í sjón­varps­pistli sem birtist í blaði dagsins. Þar skrifar Orri um tvo af vin­sælustu tón­listar­mönnum þjóðarinnar um þessar mundir, Helga Björns og Ingó veður­guð.

„Sjaldan höfum við, pest­þvæld þjóðin, haft eins mikla þörf fyrir góða af­þreyingu og á þessum síðustu og verstu tímum. Stöð 2 brást ný­lega við því og teflir nú fram Ingó veður­guði og vinum hans á föstu­dags­kvöldum,“ segir Orri Páll og bætir við að þeir þættir, Í kvöld er gigg, hafi komið skemmti­lega á ó­vart. Ó­hætt sé að segja að Ingó sé á góðri siglingu, al­þýð­legur og sér­vitur sem hann er.

„Sér­stak­lega hafði ég gaman af síðasta þætti, þar sem rokktröllin Stebbi Jak og Palli Rós (ég tala bara eins og ég þekki þessa menn, sem ég geri ekki, þetta lítur bara svo vel út) sungu úr sér lungun og Stefanía Svavars, enn eitt söng­undrið úr Mos­fells­bænum, gaf þeim ekki þumlung eftir. Eftir þá keyrslu var hnaus­þykk móða á rúðunum í sjón­varp­sálmu sveita­seturs míns,“ segir Orri.

Helgi Björns­son stal senunni þegar CO­VID-19-far­aldurinn fór á flug og hann er kominn aftur á skjáinn en nú með ör­lítið breyttu sniði. Orri segir:

„Helgi Björns má alveg vera á tánum gagn­vart þessu teymi. Hann fór ró­lega af stað í nýju setti, sem er hvergi nærri eins heimilis­legt og það gamla, en Ey­þór Ingi skaut honum aftur á spor­baug um jörðu í öðrum þættinum.“