Orri hótar að segja upp Mogganum – Hannes: „Þetta er útúrsnúningur hjá þér“

Hafnfirðingurinn Orri Björnsson, Sjálfstæðismaður og forstjóri Algalíf, gerir staksteina Morgunblaðsins að umtalsefni á Facebook-síðu sinni.

Eins og Hringbraut greindi frá í morgun eru staksteinar dagsins með undarlegra móti en þar fjallar höfundur um kórónuveiruna sem veldur COVID-19 og kýs að kalla hana Wuhan-veiruna. Látið er að því liggja að hún hafi orðið til á rannsóknarstofu og að Anthony Fauci, helsti sérfræðingur Bandaríkjanna um sóttvarnir, hafi komið þar að.

Orri er ósáttur við skrifin og segir:

„Þarf ekki að fara að sprauta honum? Að flensan drepi tugmilljónir árlega??? Og annað eftir því. Hvar eru bullmörkin í ritstjórnarefni? Hversu mikið má rugla og þrugla og hræða fólk og afvegaleiða? Þessu verður að fara að ljúka, ANNARS segi ég upp áskriftinni í annað sinn á ævinni!“

Athygli vekur að Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands og góðvinur Davíðs Oddssonar, ritstjóra Moggans, kemur staksteinahöfundi til varnar.

„Þetta er útúrsnúningur hjá þér. Það segir hvergi í greininni, að milljónatugir deyi árlega úr flensunni. Milljónatugir hafa dáið úr flensunni á síðustu áratugum, því að samkvæmt mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar til dæmis deyr hátt í milljón árlega úr henni um allan heim.“

Þór Saari, fyrrverandi þingmaður, blandar sér einnig í umræðuna og segir: „Það sem er einnig skrítið við Moggan er að það vinnur líka heilsteypt og heiðarlegt fólk þar. Hvernig er það hægt?“

Fleiri hafa gagnrýnt skrifin. Þar á meðal Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. Hann segir á Twitter-síðu sinni og birtir skjáskot af staksteinum dagsins:

„Formaður allsherjar- og menntamálanefndar kallaði þennan miðil hér að neðan meira alvöru en aðra - frumframleiðslufjölmiðil á meðan aðrir minni séu eitthvað óskilgreint annað og verra - úr pontu Alþingis í vikunni. Þess vegna ætti þessi miðill skilið meiri pening úr ríkissjóði.“