Orri bíður enn: „Hvers eigum við að gjalda?“ – Fjögur af fimm börnum hans fengið bólu­efni

Orri Páll Ormars­son, blaða­maður á Morgun­blaðinu, hefur enn ekki fengið boð í bólu­setningu eins og margir sem eru á svipuðu reki og hann. Orri vekur at­hygli á þessu í skemmti­legum pistli í sunnu­dags­blaði Morgun­blaðsins.

Kollegi Orra á Morgun­blaðinu, Ás­dís Ás­geirs­dóttir, skrifaði sams­konar pistil um liðna helgi og kvartaði þá undan því að hafa ekki fengið bólu­efni. Orri varpar nýjum upp­lýsingum fram í pistlinum því Ás­dís fékk boð í vikunni eins og hann kemur inn á síðar í pistlinum.

Orri segist hafa beðið sultuslakur framan af meðan eldra fólk, fram­línu­starfs­menn og fólk með undir­liggjandi sjúk­dóma fékk bólu­efni. „Hjó að vísu eftir því að hvergi var minnst á fólk með yfir­liggjandi sjúk­dóma, eins og exem, sóríasis og annað slíkt. Hvers eigum við að gjalda?“

Orri segir að símar hafi svo farið að klingja allt í kringum hann; þannig hafi for­eldrar hans fengið kvaðningu, eigin­kona og meira að segja fjögur af fimm börnum hans.

„Svo því sé til haga haldið þá eru börnin mín öll yngri en ég, nema mögu­lega eitt. Tvö af fjórum tengda­börnum hafa líka farið undir nálina og það þriðja verið marg­boðað enda þótt því sé ekki ráð­lagt að þiggja sprautuna að svo stöddu. Bommsí­bomm, þið skiljið.“

Segist Orri bíða eftir því að barna­börnin fái boð í bólu­setningu, jafn­vel hundurinn. Orri viður­kennir þó að hafa fengið kvaðningu en hún kom ekki í gegnum SMS eins og flestir hafa fengið heldur komu þau í gegnum vefinn Heilsu­vera.

„Þegar allir og afi þeirra voru búnir að fá boð þennan dag benti vel­gjörðar­fólk mér góð­fús­lega á að fara inn á ön­hvurja gátt í net­heimum sem heitir heilsu­vera.is. Skila­boðin gætu verið þar. Og, jú, jú, mikil ó­sköp, þar lágu þau – í blóði sínu. Mér hafði sum­sé verið frjálst að mæta ein­hverjum átta klukku­stundum áður. Í stutt­erma­bol. Verst að ég hafði aldrei á ævinni heyrt um heilsu­veru.is,“ segir Orri sem segist ryðjast þangað inn oft á dag, en því miður sé ekkert að frétta enn sem komið er.

Orri endar svo pistilinn á léttu skoti á kollega sinn, Ás­dísi Ás­geirs­dóttur. „Svo við upp­færum pistilinn frá seinustu helgi þá fékk Ás­dís kvaðningu í vikunni og situr hér al­sæl og býsna roggin við hliðina á mér, bólu­sett til hálfs. Var ein­hver að tala um bólu­setningar­öfund?!“