Barnabókin Rauðu augun veldur usla á samfélagsmiðlinum Twitter þessa stundina. Móðir nokkur lýsir því að barnið hennar hafi komið heim með bókina úr skólanum, en að henni hafi blöskrað vegna texta sem lýsir kynlífi tveggja ólögráða einstaklinga.
„Barnið kom heim með bókina rauðu augun og mér hálf flöktar við að fletta í gegnum þetta,“ skrifar móðirin, sem heitir Arna, á Twitter og birtir myndir af blaðsíðum bókarinnar.
Í kjölfarið byrjaði fólk að grennslast fyrir um bókina, sem var gefin út árið 1999, og í ljós kemur að það eru feðgar sem eru skrifaðir fyrir henni: Helgi Jónsson, grunnskólakennari, og sonur hans, Hörður Helgason. Þegar bókin var skrifuð hefur sonurinn verið á táningsaldri.
Ekki nóg með það heldur komu eldri fréttir um Helga aftur upp á yfirborðið, vegna barnabókaseríunnar Gæsahúð.
Stundin fjallaði um málið árið 2017. Þar kemur fram að í bókunum sé að finna nauðgun á fjórtán ára stelpu lýst og þá komi fyrir móðir sem sjái fyrir fjölskyldu sinni með vændi.
„Þetta er ekki við hæfi barna, nei. Þegar þú segir barn, þá náttúrlega, þetta er ekki hugsað fyrir tíu ára sko. Þetta er ekki hugsað fyrir tólf ára. Þetta er eldra en fjórtán ára sko. Þetta er gagga-aldurinn.“ er haft eftir Helga er hann var spurður hvort að honum þætti bækurnar við hæfi barna.