„Þegar ég fyllti raðir Vottanna voru safnaðarmeðlimir að undanskilinni trúnni í engu frábrugðnir öðrum og geri ég ráð fyrir að svo sé enn. Því er það í raun rannsóknarefni, hvernig fólk með venjulega dómgreind getur haldið því fram og trúað því í hjarta sínu að það fólk sem fæðist samkynhneigt sé forsmáð af almættinu, undanskilið náð guðs og velþóknun.“
Þetta segir Örn Svavarsson í áhugaverðri grein sem birtist á vef Vísis í morgun. Örn ólst upp í Vottunum en yfirgaf söfnuðinn á þrítugsaldri. Umdeilt kennslumyndband á vef Vottanna hér á landi rataði í fréttir á dögunum og vakti það hörð viðbrögð frá hinsegin samfélaginu. Í myndbandinu er ungum börnum kennt að samkynhneigð sé ekki í lagi hjá Vottum Jehóva.
Í myndbandinu kemur ung stelpa heim og greinir mömmu sínu frá því að bekkjarfélagi hennar eigi tvær mömmur. Móðirinn útskýrir fyrir barninu að samkvæmt Mósebók sé hjónaband einungis á milli karls og konu.
Örn segir að þetta sem Vottar Jehóva vilja kalla kennsluefni sé ekkert annað en áróður fyrir ansi fornri og brenglaðri trúarhugmynd.
Örn bendir á að trúarbrögðin Vottar Jehóva hafi ekki orðið til fyrr en upp úr miðri þar síðustu öld.
„Mörg trúaratriðin verða til í tímans rás, eins og t.d höfnum á jólahaldi og afælisdögum sem tekin er upp á þriðja áratug síðustu aldar. Höfuðáherslan var alla tíð lögð á endurkomu Krists sem konungs á himni árið 1914 og innan einnar mannsævi frá þeim atburði áttu ragnarök undir biblíuheitinu Harmageddon að útrýma öllum á jörðinni nema Vottunum. Þó að kjarninn í kenningunni hafi brugðist, þar sem Harmageddon reið bara alls ekki yfir, þá hanga trúarbrögðin á stagbættum og endurgerðum kenningum úr smiðju fáeinna þröngsýnna öldunga í miðstöð trúarbragðanna við eystri enda Brooklyn-brúar í Brooklyn í NY,“ segir hann.
Örn fer svo yfir hugmyndafræði Vottanna, til dæmis að fólk megi ekki þiggja blóðgjöf, sé bannað taka þátt í kosningum, sé bannað að fagna jólum og afmælum og konan sé undirgefin karlinum. Síðast en ekki síst þá hugmynd að samkynhneigð sé synd.
„Víst hafa samkynhneigðir orðið fyrir aðkasti í aldanna rás, en að hópur fólks á 21. öldinni innræti börnum sínum afdráttarlaust umburðarleysi gagnvart samkynhneigð og samkynhneigðum tekur út yfir allan þjófabálk. Ekki verður framhjá því litið að þegar heilt samfélag tekur sig saman um að leggja fæð á einn einstakling, þegar heill söfnuður fær fyrirmæli frá sínum andlegu leiðtogum um að hunsa einn úr sínum hópi með öllu, virða hann ekki viðlits frekar en að hann hefði aldrei verið til, þá eru slíkar öfgafullar aðgerðir á pari við einelti á hæsta stigi og hrópleg brot á mannréttindalögum,“ segir hann.