Örn Árnason, leikari og einn ástsælasti grínisti landsins, greinir frá því þegar hann var handtekinn í eigin fertugsafmæli í viðtali á K100.Hann viðurkenndi þó að um góðlátlegt grín hafi verið að ræða.
„Þegar ég varð fertugur þá var kunningi minn, sem var lögga – hann sendi lögreglubíl á staðinn og ég var handtekinn í afmælinu mínu og fluttur á brott. Mamma brjálaðist. Ég fattaði strax að þetta væri eitthvað djók,“ sagði Örn í samtali við K100.
Hann segist hafa tekið þátt í gríninu streist verulega á móti á handtökunni.
Í viðtali greinir Örn einni frá fyrsta alvöru kossinum er hann kyssti konu sína árið 1981 en hægt er að hlusta á þáttinn hér.