Ör­lygur Hálf­dánar­son er látinn

Ör­lygur Hálf­dánar­son bóka­út­gefandi er látinn, ní­ræður að aldri. Greint er frá and­láti hans í Morgun­blaðinu í dag.

Ör­lygur stofnaði á­samt svila sínu, Erni Marinós­syni, bóka­út­gáfuna Örn og Ör­lyg árið 1966. Bóka­út­gáfan var starf­rækt til ársins 1994 og gaf út mörg þekkt verk.

Ör­lygur kom meðal annars að út­gáfu rit­verkanna Landið þitt, Reykja­vík – sögu­staður við Sund, Ensk-ís­lensk orða­bók, Ís­lensk al­fræði­orða­bók og fleiri orða­bækur.

Hann stofnaði svo Ís­lensku bóka­út­gáfuna sem gaf meðal annars út Vega­hand­bókina og Út­kalls­bækur Óttars Sveins­sonar. Hann var á meðal stofn­enda Við­eyinga­fé­lagsins en Ör­lygur fæddist í Við­ey og ólst þar upp.

Þá var hann for­seti Slysa­varna­fé­lags Ís­lands og sat í stjórn slysa­varna­deildarinnar Ingólfs.

Ör­lygur fékk fálka­orðuna árið 1991 og Páls­orðuna, viður­kenningu Ferða­fé­lags Ís­lands, árið 2006.

Eftir­lifandi eigin­kona Ör­lygs er Þóra Þor­geirs­dóttir og synir þeirra eru Þor­geir, Ör­lygur Hálfdan, Matthías, d. 2014, og Arn­þór.