Orð dagsins: Víðir Ekki láta pirring bitna á sak­lausu fólki, látið það bitna á okkur

Orð dagsins á Víðir Reynis­­son yfir­­lög­­reglu­­þjón. Mikið hefur mætt á Víði og hefur hann á blaða­manna­fundum reynt að halda al­menningi upp­lýstum um stöðu mála vegna kóróna­veirunnar. Víðir á orð dagsins og lét hann þau falla í lok fundarins í dag. Var þeim beint til ís­lensku þjóðarinnar. Orð dagsins eru svo­hljóðandi:

„Höldum á­fram að vera góð við hvort annað. Það er mjög sér­stakt en við höfum fengið tölu­vert mikið af á­bendingum síðasta sólar­hring frá starfs­fólki í verslunum sem kvartar undan fram­komu við­skipta­vinanna. Ef þið eruð pirruð þarna úti, ekki láta það bitna á starfs­fólki verslananna. Það er ekki þau sem setja reglurnar. Þau eru bara að fram­fylgja því sem við segjum. Látið það frekar bitna á okkur. Við getum reynt að út­skýra ef fólk er ekki að skilja það. Ekki láta það bitna á sak­lausu starfs­fólki verslana sem er að gera sitt besta til að sinna okkar þörfum.“

Þá sagði Víðir að lokum:

„Að lokum, þetta sem við erum alltaf að segja, ef þér líður illa, vertu þá heima. Ef þú ert með ein­hvers­konar ein­kenni, háls­bólgu, nef­rennsli, vertu þá heima. Verum örugg, talaðu við lækninn þinn og fáðu að vita hvort þú megir fara út. Ekki fara út. Ekki taka ís­lenska víkinginn, með kvefið, háls­bólguna og bein­verkina og ætla að mæta í vinnuna. Ekki gera það.“