Orð dagsins: Þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins telur 30 þúsund duga fyrir mat á mánuði

Á miðjunni er að finna til­vitnun í þing­ræðu Njáls Trausta Frið­bergs­sonar, þing­manns Sjálf­stæðis­flokksins.

„Þjóð­hag­fræði var ein af mínum upp­á­halds­greinum í skóla og fyrir svona 40 árum þegar maður var að alast upp fóru að meðal­tali um 35% af rekstri ís­lenskra heimila í það að kaupa í matinn. Þetta hlut­fall er í dag 12–15%. Það skiptir máli að byggja upp hag­vöxt og lands­fram­leiðslu. Auð­vitað eigum við að gera það með sjálf­bærum hætti og sem öflugustum hætti og ég tel okkur Ís­lendinga ein­mitt hafa verið að gera það í gegnum árin.“

Á Miðjunni segir:

„Það verður að gefa Njáli Trausta að hann hafi munað eftir, og jafn­vel haft í huga, það fólk sem fær minnst til að draga fram lífið. Rétt rúmar 240 þúsund krónur á mánuði.

Ef Njáll Trausti er með um 1,2 milljónir á mánuði ver hann um 150 þúsund í mat, fimm sinnum meira en ör­yrki, svo hans eigið dæmi sé notað.“