Orð dagsins: Katrín ó­sátt - „Þetta er al­gert rugl“

„Af hverju eru það bara Ís­lendingar sem koma af hættu­svæðum sem fara í sótt­kví? Er ekki eðli­legast að stoppa ferðir hingað frá Ítalíu fyrst að þetta er á­litið nógu al­var­legt til að ís­lenskt fólk fari í sótt­kví?“

Þetta segir Katrín Odds­dóttir mann­réttinda­lög­fræðingur um hina skæðu kórónaveiru. Katrín hefur oft látið á sér kveða með skel­eggum hætti í fjöl­miðlum. Mannréttindalögfræðingurinn á orð dagsins að þessu sinni en Katrín segir:

„Þetta er al­gert rugl. Ís­lendingur sem greinist ekki með smit en kemur frá Verona fer í sótt­kví í tvær vikur en Ítalinn sem kom með sömu vél fer ekki í greiningu og fer beint á Snaps. Við getum alveg eins sleppt þessu ef kapítal­isminn á að fá að ráða þessu.