Orð dagsins: Hjúkrunar­fræðingar í kuldanum en Bjarni ætlar sér að fá launa­hækkun fyrir sjálfan sig

Orð dagsins á Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata. Orðin eru hluti af pistli sem eru að finna á vef Mann­lífs. Þar gagn­rýnir Þór­hildur Sunna Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra harð­lega. Það er ó­þarfi að orð­lengja þetta frekar. Orð dagsins eru svo­hljóðandi:

„Hvers vegna ætli Bjarni þykist ekki vita hvað það kosti að ganga að kröfum hjúkrunar­fræðinga? Ætli það sé vegna þess að hann veit að það kostar minna heldur en steypan sem hann ætlar að eyða peningum ríkisins í á árinu? Eða ætli það sé vegna þess að hann veit að það fölnar í saman­burði við þá launa­hækkun sem hann sjálfur ætlar sér að fá hvað úr hverju?

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir tekur fjármálaráðherra til bæna

Eða ætli það sé virki­lega þannig að fjár­mála­ráð­herra Ís­lands, hand­hafi samnings­um­boðs ríkisins í kjara­málum, hafi bara ekki viljað kynna sér það þetta heila ár sem hjúkrunar­fræðingar hafa verið samnings­lausir?“

Grein Þór­hildar Sunnu má lesa í heild hér.