Það vakti mikla athygli þegar breiðþota Icelandair, sem var að koma með lækningavörur í beinu flugi frá Shanghai í Kína, teiknaði hjarta með Landspítalann í miðjunni þegar komið var til landsins á sunnudag.
Mynd af þessu vakti mikla athygli á netmiðlum og þótti mörgum skilaboðin bæði falleg og hvetjandi enda heilbrigðisstarfsfólk landsins staðið í ströngu í COVID-19 faraldrinum.
Það voru þó ekki allir hrifnir af þessu uppátæki og sköpuðust býsna fjörugar umræður um það í Facebook-hópnum Markaðsnördar. Ein athugasemd vakti þó kannski meiri athygli en aðrar athugasemdir:
„Vei. Takk fyrir að menga meira,“ sagði maður í umræddri athugasemd í þræðinum. Markaðsnördum þótti þessi athugasemd full neikvæð. „113“ sagði einn sem er vísun vælubílinn svokallaða á meðan annar sagði: „Vá skuli fúli mættur í öllu sínu veldi.“ Enn annar spyr einfaldlega: „Hvernig er hægt að sjá neikvæðan vinkil á þessu?“
Maðurinn svaraði svo fyrir þessa gagnrýni og var fastur á sinni skoðun.
„Fyrirtæki sem er líklega í topp 5 yfir mest mengandi fyrirtæki landsins ákveður að menga aðeins meira fyrir cheap PR. Persónulega finnst mér það mistake. Mengunin (beint yfir þéttbyggðasta svæði landsins) veldur aukið álag á heilbrigðiskerfið. Þarf engin geimvísindi til að sjá hræsnina í þessu.“