Orð dagsins: Fávitar hlaupa í gosið

Jónas Kristjánsson heitinn, fyrrverandi ritstjóri, þótti stundum hitta naglann á höfuðið í pistlum sínum. Jónas var ritstjóri DV um margra ára skeið auk þess að ritstýra Fréttablaðinu og Tímanum svo fátt eitt sé nefnt.

Eldgosið á Reykjanesi hefur vakið mikla athygli en í nótt þurfti að koma tugum til hjálpar sem voru orðnir kaldar og hraktir í vonskuveðri við gosstöðvarnar við Fagradalsfjall. Stöðugur straumur fólks hefur verið að gosstöðvunum um helgina og þó flestir hafi farið að öllu með gát hafa leynst svartir sauðir inni á milli. Alls voru 38 manns fluttir í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Grindavík í nótt og þrír voru fluttir með sjúkrabíl vegna gruns um ofkælingu.

Þann 31. mars 2010 birtist stuttur og skorinorður pistill eftir Jónas á heimasíðu hans, en yfirskrift pistilsins var Fávitar hlaupa í gosið. Skömmu áður hafði eldgos hafist á Fimmvörðuhálsi og þá, líkt og nú, fóru margir á svæðið til að freista þess að sjá gosið. Ekki fóru þó allir varlega eins og Jónas benti á. Var til umræðu að loka aðgengi að gosstöðvunum svo fólk færi sér hreinlega ekki að voða.

Jónas var á því að eitthvað þessu líkt gæti aðeins gerst á Íslandi eins og lesa má í pistli hans hér að neðan.

„Hvar í heiminum haldið þið að girða þurfi hraunstraum, svo að fólk hlaupi ekki út í hann? Það er auðvitað hjá þjóð, sem að mestu er skipuð fávitum. Formaður flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu er búinn að panta girðingarefni til að bægja fólki frá hættulegri nálægð við hraunstrauminn. Frægar eru fréttir af fólki, sem hleypur upp á Fimmvörðuháls í partí-fötunum sínum og er bjargað frá dauða af völdum kals. Þetta er eina þjóð heimsins, sem gat framkallað algert hrun ríkis og þjóðar. Það gerði hún með 40% stuðningi við græðgi, spillingu, bankamútur og Davíð. Þessa þjóð kalla ég algera fávita.“