Orð dagsins á tónlistarkonan vinsæla Ellen Kristjánsdóttir en þau lét hún falla á Facebook-síðu sinni í gær. Þar beinir hún orðum sínum að leigusölum og sparar ekki stóru orðin.
Ætla má að tilefni færslunnar hafi verið fréttir þess efnis að leigusalar hafi hækkað leiguverð, meðal annars í miðbænum, í miðjum kórónuveirufaraldri.
Einn slíkra staða er B5 í Bankastræti en Þórhallur Viðarsson, einn eigenda staðarins, sagði farir forsvarsmanna staðarins af samskiptum við fasteignafélagið Eik ekki sléttar. Leigan hafi hækkað um hálfa milljón eftir að staðnum var lokað í samkomubanni og þá hafi forsvarsmenn staðarins staðið straum af endurbótum á húsnæðinu fyrir tugi milljóna.
Þó Ellen tiltaki þetta mál ekki sérstaklega er augljóst að hún – eins og svo margir aðrir – hefur ekki mikið þol fyrir þeim sem stunda okur eða sýna af sér græðgi.
„Þið sem leigið út húsnæði á uppspregndu verði og notfærið ykkur þá sem eru í neyð, hafið manndóm í ykkur til að kosta allt viðhald, sjá til þess að allt sé í lagi, íbúðir séu samþykktar og lækkið leiguverðið en umfram allt, fáið hjálp við græðgi og siðleysi.“